Breyttust áætlanir þínar? Við getum aðstoðað þig við að finna annan valkost!
Þar sem bókunin þín samanstendur af tveim aðskildum bókunum: einni fyrir flugið og einni fyrir hótelið þarftu að breyta þeim báðum. Hér að neðan eru upplýsingar um hvernig þetta er gert:
Hvernig get ég breytt bókuninni minni?
Áður en við getum breytt bókuninni þinni þurfum við að athuga hvort reglurnar fyrir bókun farmiðans/hótelsins heimila breytingar. Athugaðu að allar breytingar á dagsetningum eða flugleiðum falla undir reglur ferðaþjónustunnar og þeim er ekki hægt að breyta. Almennt er ekki hægt að breyta flugferðum og hótelherbergjum sem bókuð eru á afsláttarverði.
Hvað kostar að breyta bókuninni minni?
Ef reglur fargjaldsins í bókuninni heimila breytingar mun flugfélagið innheimta mismuninn á milli upprunalega fargjaldsins og verðs nýja flugmiðans og að öllum líkindum mun það einnig innheimta viðbótargjald fyrir breytinguna. Fyrir hótelbókanir þarf hugsanlega að greiða aukalega fyrir mismuninn á herbergisbókunum og breytinguna (sem getur verið allt að 100% af upprunalegu verði ef bókun er breytt með stuttum fyrirvara). Hafðu í huga að við innheimtum þjónustugjald að upphæð 8000 kr fyrir breytingar.
Þarftu meiri aðstoð?
Var þessi grein gagnleg?