Farangursheimilidin þín (fyrir hluti sem eru settir í farangursrýmið) er almennt 20 kg eða 23 kg (athugaðu staðfestingarpóstinn sem þú fékkst eða farðu í Stjórna bókuninni minni til að athuga þetta).
Ef farangurinn þinn er þyngri en farangursheimildin segir til um rukkar flugfélagið yfirleitt aukalega. Aukagjaldið getur verið annaðhvort fyrir hvert aukakíló eða fyrir hvern hlut - athugaðu þetta nánar hjá flugfélaginu. Hins vegar er hámarksheimild fyrir alla staka hluti 32 kg.
Ef hluturinn fer yfir þessa þyngd þarftu að hafa samband við flugfélagið og gera ráðstafanir til að senda hann sem farm.
Farangur þinn er einnig takmarkaður við tiltekna stærð - almennt viðmið er 90 x 75 x 43 cm, en það getur verið misjafnt á milli flugfélaga. Þegar um er að ræða stærri hluti eins og íþróttabúnað (hjól, brimbretti, o.s.frv.) eða hljóðfæri eru flugfélög með ólíkar stefnur og gjöld.
Vinsamlegast hafðu samband ef þú vilt taka slíkan hlut með og við höfum samband við flugfélagið fyrir þína hönd. Vinsamlegast athugaðu að það er lágt gjald fyrir þessa þjónustu.
Þarftu meiri aðstoð?
Var þessi grein gagnleg?