Þarftu að afturkalla ferðina?
Í flestum tilfellum munum við geta afturkallað bókunina, hins vegar mun það ekki endilega leiða til endurgreiðslu þar sem hún fer eftir fargjaldaskilyrðum miðans.
Hverjar eru afpöntunarstefnurnar?
Það fer eftir fjargjöldum og skilyrðum flugfélagsins, en þú kannt að eiga rétt á fullri, hlutfallslegri eða engri endurgreiðslu. Sum flugfélög kunna einnig að rukka afpöntunargjald og mörg fargjöld eru óendurgreiðanleg.
Ef hægt er að endurgreiða miðann og þú keyptir venjulegan (Standard) eða Premium-miða munum við sjá um að afbóka hann fyrir þig þér að kostnaðarlausu. Að öðrum kosti mun Travellink rukka 8000 kr stjórnunargjald á hvern miða.
Hvernig afturkalla ég bókunina?
Við getum aðeins séð um að afbóka miða hjá flugfélögum í reglubundnum áætlunarflugi, eins og British Airways, American Airlines og Air France. Ef þú ferðast með lággjaldaflugfélagi (t.d. Ryanair, Easyjet, Vueling) skaltu hafa beint samband við flugfélagið til að biðja um afbókun.
Til að athuga hvort hægt sé að afturkalla bóknunina í gegnum sjálfvirka þjónustu okkar (til dæmis, ef miðinn er með ókeypist afpöntunartímabil eða þau hefur keypt „afturköllun af einhverri ástæðu“) smellirðu á „Athuga núna“.
Hefurðu nú þegar innritað þig?
Hvernig get ég hætt við bókunina ef ég er búin(n) að innrita mig?
Það eru nokkur atriði sem við getum ekki gert ef þú hefur þegar innritað þig.
Ef þú vilt hætta við ferðina þarftu að hætta við innritunina með því að hafa beint samband við flugfélagið og síðan fara í Mínar ferðir til að hætta við ferðina.