Ef þú getur ekki ferðast, og þar sem bókunin samanstendur af tveimur mismunandi bókunum, annarri fyrir flugið og hinni fyrir hótelið, þarftu að afbóka báðar bókanirnar.
Afbóka hótelbókunina
Hægt er að afbóka allar hótelbókanir en þær fást ekki allar endurgreiddar. Með hliðsjón af gerð herbergis sem þú bókaðir er hugsanlegt að þú getir afbókað hótelið án alls kostnaðar. Í einhverjum tilvikum innheimtir hótelið gjald fyrir afbókunina, sem getur verið allt frá verði einnar nætur í að þú þurfir að greiða fyrir alla dvölina. Í öllum tilvikum er ráðlagt að afbóka fyrir komudag til að komast hjá viðbótargjöldum. Hafðu í huga að staðartími hótelsins er það tímabelti sem notast skal við þegar kemur að tímamörkum á breytingu á bókuninni.
Afbóka flugmiðann
Ef þú ætlar ekki að fara í flugið ráðleggjum við þér að hafa samband við okkur eins fljótt og hægt er svo við getum skoðað reglurnar sem gilda fyrir farmiðann í bókuninni þinni.
Athugaðu að sum fargjöld eru takmörkuð svo hugsanlega er ekki hægt að fá ónotaða miða endurgreidda, eða flugfélagið innheimtir gjald fyrir endurgreiðsluna. Travellink innheimtir umsýslugjald að upphæð frá 7000 kr. fyrir hvern miða fyrir að sjá um afbókun að þínu frumkvæði (gjaldið getur verið breytilegt ef þú hefur valið þjónustuvalkost).
Við getum aðeins séð um að afbóka miða hjá flugfélögum í reglubundnu áætlunarflugi. Ef þú ert að ferðast með lággjaldaflugfélagi skaltu hafa beint samband við flugfélagið til að óska eftir afbókun.
Ef þú þarft að hætta við bókun hjá flugfélagi í reglubundnu áætlunarflugi skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur.
Þarftu meiri aðstoð?