Ef afhending á farangrinum þínum tefst hefur flugfélagið 21 dag til að finna hann og skila honum aftur til þín. Í millitíðinni þarf flugfélagið að greiða allan kostnað sem hlýst af því að þú ert ekki með eigur þínar. Ef flugfélagið getur ekki fundið farangurinn þinn innan 21 dags er hann talinn týndur. Í því tilviki þarftu að sækja um skaðabætur og flugfélagið mun að öllum líkindum biðja þig um lista yfir hlutina sem týndust. Við mælum með því að þú látir eins mörg frumrit af kvittunum fyrir hlutunum fylgja með og mögulegt er. Þú getur sótt um skaðabæturnar á þjónustuborði flugfélagsins á flugvellinum eða í pósti. Farðu á heimasíðu flugfélagsins til að finna samskiptaupplýsingarnar.
Var þessi grein gagnleg?