Áður en þú bókar flugið skaltu hafa eftirfarandi farþegaflokka í huga:
- Ungbörn: Farþegar undir 2 ára aldri. Ungbörn verða að ferðast í sama sæti og móðirin eða faðirinn. Í flestum tilvikum ferðast ungbörn ókeypis eða greitt er um 10% af fargjaldi fyrir fullorðna. Ef þú þarft sér sæti fyrir ungbarnið þarf það að ferðast í samþykktum barnastól (snýr yfirleitt baki í flugstefnu) og greiða þarf fullt gjald fyrir sætið. Sum flugfélög eru með barnarúm um borð í flugvélunum (yfirleitt í löngum flugum) sem hægt er að biðja um við bókun. Athugaðu að ekki er hægt að ábyrgjast að flugfélagið geti séð þér fyrir barnarúmi. Flugfélagið þarf aðeins að sjá um að úthluta þeim. Ef ungbarnið er 1 árs við brottför en hefur náð 2 ára aldri við heimkomu þarftu að bóka heimflugið fyrir barn en ekki ungbarn.
- Börn: Farþegar á aldrinum 2 til 12 ára. Ef barnið þitt er 11 ára við brottför en hefur náð 12 ára aldri við heimkomu getur það enn ferðast á barnagjaldi. Yfirvöld kunna að biðja um heimild frá foreldri/foreldrum eða forráðamanni/mönnum ef barnið þarf að ferðast eitt.
- Fullorðnir: 12 ára og eldri.