Það er auðvelt og fljótlegt að skipuleggja fríið með Travellink. Það tekur aðeins örfáar mínútur að ljúka kaupunum og fá öll nauðsynleg fylgiskjöl fyrir ferðina.
Hér fyrir neðan eru allar upplýsingar um hvernig bókað er á netinu:
1. Leit, úrval flugferða og upplýsingar um farþega
Þegar þú leitar að flugi bjóðum við þér upp á allar hugsanlegar samsetningar á flugi fyrir ferðaáætlunina þína með u.þ.b. 665 flugfélögum. Þegar þú hefur valið flugferðirnar þarftu aðeins að gefa upp upplýsingar um farþega og greiðanda (þann sem birtist á reikningnum). Mikilvægt er að staðfesta að allar upplýsingar séu réttar, sérstaklega netfangið, dagsetningarnar, flugleiðirnar sem valdar eru og fullt nafn allra farþega.
Í þessu skrefi, hjá einhverjum flugfélögum, geturðu valið farangurinn sem þú þarft að innrita. Athugaðu að sum flugfélög taka viðbótargjald fyrir þessa þjónustu og sum bjóða ekki upp á að hægt sé að bæta við farangri á netinu.
2. Staðfesting á bókun
Þegar þú hefur gefið upp upplýsingar um alla farþega, og áður en kaupin eru staðfest, býðst þér að bæta þjónustu við bókunina, t.d. ferðatryggingu sem aðstoðar þig og/eða bætir þér upp ef eitthvað óvænt kemur upp á. Í þessu skrefi þarftu að gefa upp greiðsluupplýsingar með því að velja kortanúmer, korthafa og CVV-númer.
Áður en þú staðfestir bókunina ráðleggjum við þér að staðfesta allar upplýsingarnar í reitnum Samantekt til að staðfesta að þú hafir valið réttu dagsetningarnar og flugleiðirnar og að nöfn farþeganna séu rétt skrifuð. Eftir það skaltu smella á „Kaupa“ og þú færð sendan staðfestingarpóst innan nokkurra mínútna (athugaðu í innhólfið og ruslpóstsmöppuna.
3. Staðfesting á greiðslu
Þegar beiðnin þín hefur verið staðfest býr kerfið okkar til greiðslubeiðni. Ef bankinn þinn samþykkir greiðsluna er staðfest upphæð úr bókunarferlinu skuldfærð og E-miðarnir gefnir út.
4. E-miðar
E-miðarnir þínir verða gefnir út innan sólarhrings frá því að greiðslan er samþykkt. Í flestum tilvikum eru miðarnir gefnir út nokkrum mínútum eftir að greiðslan hefur verið staðfest nema þú hafir valið sérþjónustu sem flugfélagið þarf að samþykkja (t.d. séraðstoð við farþega sem eru hreyfihamlaðir, farþegar sem ferðast með gæludýr o.s.frv.)
Við bendum á að kerfið okkar framkvæmir öryggisathuganir af handahófi til að tryggja 100% öruggar greiðslur. Af þessum sökum verður færslan þín hugsanlega athuguð áður en hún er staðfest, sem getur tafið útgáfu miðanna um nokkrar klukkustundir. Ef færslan stenst ekki öryggisathugun okkar munum við hafa samband við þig með tölvupósti.
5. Lokastaðfesting á flugi og innritun á netinu
Einstaka sinnum kemur það fyrir að flugfélög þurfa að breyta flugi sökum óviðráðanlegra aðstæðna eða vegna skipulagsmála. Af þessum sökum ráðleggjum við þér að staðfesta flugið tveimur til þremur sólarhringum fyrir brottför. Ef þú ert að ferðast með lágfargjaldaflugfélagi á borð við EasyJet eða Ryanair, ráðleggjum við þér að hafa beint samband við flugfélagið. Þegar þú hefur staðfest brottfarartímann þarftu aðeins að innrita þig á netinu og prenta út brottfararspjöldin.
Var þessi grein gagnleg?