Verslun á netinu er ekki lengur ný af nálinni. Ef þú vilt greiða með greiðslukorti á vefsvæðinu eru kortaupplýsingarnar þínar dulkóðaðar fyrir færsluna, sem er öruggara en að gefa þær upp í síma.
Við notum Secure Socket Layer-tækni (SSL), svo þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur þegar þú notar kreditkortið þitt til að greiða á netinu hjá Travellink. Öryggi þarf ekki að vera ástæðan sem hindrar þig í að versla á netinu.
Til að vernda færslurnar þínar á netinu enn frekar höfum við tekið upp kerfið „Vottun Visa“ (Verified by Visa) á vefsvæði okkar. Vottun Visa er þjónusta sem Visa hefur þróað til að staðfesta færslurnar þínar á netinu. Ef þú ert innskráð(ur) á kerfið í gegnum kortaútgefandann þinn sérðu sprettiglugga í greiðsluferlinu sem biður þig um að færa inn aðgangsorðið þitt og kortaupplýsingar fyrir þjónustuna Vottun Visa. Fylltu út í reitina og Visa staðfestir upplýsingarnar þínar. Hafðu samband við kortaútgefandann til að fá frekari upplýsingar um Vottun Visa.
Öryggi hjá Travellink nær lengra en að vernda greiðsluupplýsingarnar þínar á netinu. Við gerum allt til að tryggja að miðarnir þínir berist til þín á uppgefnum tíma. Við gerum alltaf okkar besta til að láta þig vita um allar breytingar á flugupplýsingum. Í rauninni aðstoðum við þig að finnast þú örugg(ur) í gegnum allt ferðalagið.
Var þessi grein gagnleg?