Hvernig samþykkir þú endurgreiðslumiðann?
Til að samþykkja endurgreiðslumiðann skaltu smella á hnappinn „Samþykkja endurgreiðslumiða” sem er að finna í tölvupóstinum sem við sendum þér.
Hvernig notarðu endurgreiðslumiðann?
Innleysanlegur í forritinu okkar fyrir Android eða iPhone. Ef þú sækir forritið okkar muntu geta geymt endurgreiðslumiðann í nýja forritseiginleikanum Veski þangað til að þú ert tilbúin/n að nota hann. Við sendum þér reglulegar fréttir til að passa að þú fáir sem mest út úr endurgreiðslumiðanum áður en hann rennur út.
Hver er gildistími endurgreiðslumiðans?
Þessi endurgreiðslumiði verður í boði í 18 mánuði. Hann má nota til að bóka flug fram að gildistíma inneignar sem er að finna í tölvupóstinum sem við höfum sent þér.
Hvert er virði endurgreiðslumiðans?
Virði endurgreiðslumiðans er tekið fram í tölvupóstinum sem við höfum sent þér.
Hvað ef inneignin er ekki nóg til að ná yfir heildarupphæð bókunar?
Greiða verður eftirstandandi upphæð með korti. Gildir fyrir öll fargjöld og aukaþjónustu sem þú bókar.
Athugaðu vinsamlegast að til að innleysa endurgreiðslumiðann þarftu að nota sama tölvupóstfang og þú notaðir í upprunalegu bókuninni og bóka flugið með forritinu frá sama landi og upprunaleg bókun var gerð í. Almennir skilmálar okkar gilda um bókunina. Við áskiljum okkur rétt til að afturkalla endurgreiðslumiðann eða bókunina að hluta til eða í heild ef um sviksamlega notkun er að ræða.
Ef þú vilt ekki samþykkja þennan endurgreiðslumiða
Ef þú vilt ekki samþykkja þennan endurgreiðslumiða skaltu smella á tengilinn sem er að finna í tölvupóstinum sem við höfum sent þér og við munum halda áfram að vinna með flugfélaginu að því að tryggja þér endurgreiðslu í reiðufé. Vegna COVID-19, takmarkana stjórnvalda og fordæmalauss magns af beiðnum eru mörg flugfélög því miður ófær um að vinna endurgreiðslur í reiðufé á venjulegum tímaskala og þetta mun líklega valda nokkurra vikna töf.