Það kann að vera hægt að fá ónotaða miða endurgreidda en það fer eftir mörgum ólíkum þáttum.
1) Gerð fargjalds
Flest ódýr fargjöld eru óendurgreiðanleg, sérstaklega hjá lággjalda flugfélögum. Hins vegar getum við athugað þetta fyrir þig, stundum sjálfkrafa á netinu - farðu á Stjórna bókuninni minni fyrir nánari upplýsingar.
2) Þegar þú afbókar
Yfirleitt er engin endurgreiðsla heimil frá flugfélaginu ef þú afbókar ekki flugið áður en flug á útleið á sér stað. Ef þú afbókar ekki fyrir brottför og þú mætir ekki í flugið lítur flugfélagið svo á að það sé „„No show““ (ekki mætt). Undir þeim kringumstæðum er ólíklegt að flugfélagið muni heimila endurgreiðslu og flugfélagið mun líklega afturkalla heimflugið sjálfkrafa. Ef þú veist að þú munir missa af fluginu skaltu tala við flugfélagið um leið og þú kemst að því, til að athuga hvaða aðrar ráðstafanir er hægt að gera og til að biðja það um að halda heimfluginu fyrir þig.
3) Af frjálsum eða ófrjálsum vilja
Ef þú vilt afturkalla ákvarðast endurgreiðslan af fargjaldaskilyrðum. Fargjaldsskilyrði eru sett af hverju flugfélagi og þau geta verið mismunandi eftir flugfélagi og verið ólík eftir því hvaða verð þú keyptir fyrir það tiltekna flug. Almennt séð er því lægra sem verðið er, því hærri eru afbókunarsektir og eins og hefur verið nefnt, getur það oft verið óendurgreiðanlegt.
Ef flugfélagið afturkallar flugið, þá ætti það annaðhvort að bjóða annað flug eða fulla endurgreiðslu. Ef afturköllunin er gerð þegar þú ert á flugvellinum kanntu einnig að eiga rétt á bótum frá flugfélaginu, svo að þú skalt spyrja um það á afgreiðsluborði flugfélagsins.
Eins og stendur tekur það flugfélögin 3 til 6 mánuði að svara þrátt fyrir að samkvæmt reglugerð ESB EB261/2004 beri flugfélögum skylda til að endurgreiða innan 7 daga.
Ef flugið er afturkallað vegna gjaldþrots flugfélagsins, munu verkferlar vera mismunandi eftir gerð flugfélags og landinu þar sem flugfélagið er staðsett. Í slíkum tilvikum munum við hafa samband eins fljótt og hægt er til að ræða hugsanlegar aðgerðir en yfirleitt er langvinnt lagaferli, sem þýðir oft löng seinkun á endurgreiðslu og niðurstaðan getur jafnvel orðið sú að engin endurgreiðsla verði. Ráðfærðu þig við tryggingarfélagið þitt eða kortaútgefanda til að athuga hvort þeir veiti einhverja tryggingavernd.
Hafðu umsjón með bókuninni þinni